Íslensk heimili
  • 0Shopping Cart
  • Search
  • Menu Menu
Blogg

Helgarinnlit í Haga Svíþjóð

Helgarinnlit í ótrúlega hlýlega og notalega íbúð í Haga hverfinu í Stokkhólm.

Hún Emma er ótrúlega fær Innanhús hönnuður. hún lærði Innanhús hönnun í London og hefur unnið lengi í verslunum sem útstillingahönnuður, en í dag rekur hún sitt eigið fyrirtæki og tekur að sér hin ýmsu verkefni tengd innanhúshönnun.

Við skulum líta á nokkrar myndir af þessu skemmtilega húsi í Haga Stokkhólm.

Gaman að sjá hversu milda liti hún notar á veggina og heldur áfram að nota þá í t.d rúmfatnaði. Hér er ekki spilað með contrast heldur mýkt og þægilegt andrúmsloft.
Sjáið þið fallega gamla arininn. Algjör dásemd.
Ansi notalegt horn í svefnherberginu þar esm hægt er að slaka á og glugga í tímarit.
Viðarsnagar eru að koma sterkt inn þessa dagana.
Þegar litið er inn í eldhúsið þá tekur við þessa mýkt og notalegheit einsog við sáum í svefnherberginu.
Dimmbláar eldhúshurðarnar lífga uppá eldhúsið.
Falleg samsetning af eldhúsáhöldum og grænum plöntum og kryddjurtum.
þarna væri ansi notalegt að sitja og gæða sér á kaffibolla, horfa útum gluggann yfir barujárnsþökin og njóta.
Lítil stofa en allt til alls.
Gaman að sjá litlu detailana hér og þar um íbúðina. Mikið um náttúruleg element einsog leirpottar og jarðlitir.
Sófinn er fullur af fallegum púðum sem gott væri að hjúfra sig í með teppi og góða bók.
i bakhúsi er lítill sameiginlegur garður. ýmsar fallegar plöntur og notalegt umhverfi.

Þessi íbúð er nú ekki stór en gaman að fá hugmyndir og þá fannst mér sérstaklega gaman að sjá litavalið sem hún Emma notaði. Þessi mýkt og notalegheit sem einkenndu íbúðina dregur mann algjörlega inn í umhverfið og ég gæti trúað því að það væri ansi notalegt að hafa svona mjúka litapallettu um allt húsið sitt.

Hvað fannst þér?

Kær kveðja Ágústa

2. febrúar, 2019/0 Comments/by Ágústa
Blogg

Ikea hack helgarinnar

í dag ætlum við að skoða mjög fallegt Ikea hack

Hver elskar ekki sniðugt og einfalt ikea hack, ég tala nú ekki um ef það er líka frekar ódýrt og auðvelt í framkvæmd. Ég rakst á þetta skemmtilega Ikea hack um daginn þegar ég var að vafra um á netinu.

Hún Maiju Saw heldur úti blogginu Maijusaw.stilllifeblogs.com hún býr í gömlu fallegu húsi og langaði að setja fallega langa hirslu þvert yfir stofuna undir gluggann hjá sér. Hún vissi bara að hún vildi ekki hafa hirsluna opna því hún átti fullt af dóti sem hún vildi fela inní skáp.

Henni datt i hug að skoða ikea skápa með fallegum hurðum. Hún fann ekkert sem passaði almennilega, þannig hún fékk þá hugmynd að kaupa ódýra ikea eldhússkápa og ódýrustu hurðarnar. Síðan keypti hún lista í byggingavöruverslun og góða málningu.

ódýrar ikea hurðar og listar.

Því næst pússaði hún hurðarnar og límdi listana á. henni datt í hug að gera þetta svona þar sem hún fann ekki hinar fullkomnu hurðar. En hún vildi endilega hafa þennan fallega sjarma yfir skápnum sem myndi passa svo vel í húsið hennar.

Við skulum líta á nokkrar myndir og sjá lokaútkomuna.

Mér sýnist hún hafa fengið þunna plötu og málað hana í sama lit og skápinn og lagt ofaná eininguna.
Einstaklega smart.
Mildi grái liturinn sem hún valdi á skápinn passar einstaklega vel með svörtu,hvítu og bast mottunni.

Hvernig líst ykkur á þetta Ikea hack? þið megið endilega commenta undir bloggfærslurnar, það er svo gaman þegar fólk tekur þátt í umræðum hér inni.

Ég er með fult af fleiri skemmtilegum Ikea höckum sem ég mun deila með ykkur innan skamms, fylgist með!

kær kveðja Ágústa

2. febrúar, 2019/0 Comments/by Ágústa
Blogg

Sunnudags heimsókn Annika Von Holdt

 

í dag ætlum við að kíkja í Sunnudagsheimsókn til Rithöfundarins Anniku Von Holdt.

 

 

Annika er mjög smart týpa sem býr í Fallegu húsi í Kaupmannahöfn. Áður en hún varð fræg fyrir störf sín sem rithöfundur þá vann hún sem módel og í almannatengslum. Hún átti mjög farsælan feril sem módel en í dag liggur hennar ástríða í að skrifa spennu og hryllingsbækur, hún hefur einnig gefið út bækur tengdar innanhúshönnun og skrifað fyrir ýmis blogg og tímarit.

Maður tekur alveg andköf þegar myndirnar af heimilinu hennar eru skoðaðar, en hún býr í Kaupmannahöfn ásamt syni sínum, manni og gæludýrum. Heimilið einkennist af svörtu, hvítu og stundum poppar upp smá litur.

Þegar Annika er spurð útí stílinn sinn þá segir hún að hann sé svona blanda af hinu og þessu, hún elskar tímalausa hönnun sem er falleg núna og verður það áfram eftir 20 til 40 ár líka. Hún safnar að sér hönnun eftir t.d Verner Panton, Philippe Starck,Le Corbusier og fleiri. Ásamt tímalausri hönnun þá finnst henni mjög fallegt að hafa gróf húsgögn bekki, borð, og ljósakrónur á heimilinu sem hún hefur safnað að sér í gegnum árin.

Við skulum kíkja í heimsókn í glæsilega heimilið hennar Anniku, en þegar hún dvelur ekki í húsinu sínu þá er hún í fríi á Karabíska hafinu. Eflaust algjör draumur að búa þarna og ferðast einnig til annara landa og eiga afdrep þar.

 

Hún er dugleg að breyta heima hjá sér og færa til húsgögnin. Hún breytir oft um áklæði á sófanum og finnst mér þessi bleiki sófi algjör dásemd.

 

Hún elskar svart og hvítt, Monochrome. En þegar því er blandað saman með gylltu, grænum plöntum og fallegri hönnun þá verður heildarmyndin virkilega töff.

 

Gaman að sjá hversu bold mynaveggurinn hennar er.

 

Gæludýrin fá oft að vera með á myndunum hennar. Hér sjáum við andstæður sem flott er að raða saman. Gamalt viðarborð með hönnunarstólum.

 

Elska þessa samsetningu hjá henni. Grænar stórar plöntur í gömlum leirpottum setja punktinn yfir ið.

 

myndin á veggnum er forsíða bókarinnar hennar sem heitir Pantomime. Virkilega flottur rammi og öðruvísi en maður er vanur að sjá á heimilum.

 

Virkilega flott stílisering hjá Anniku.Ég væri alveg til í svona töff gólffjalir og þetta bleika loð á stólnum. já hvern er ég að plata! væri til í þetta allt.

 

 

Big og bold það er svolítið hennar stíll. En takið eftir að hún er ekki með mikið af smáhlutum heima hjá sér. Kannski felur hún það bara inní skáp.

 

 

Dásamlegt baðherbergi. Þetta baðkar og þessar flísar!

 

Hér finnst mér virkilega fallegt að hafa vaskinn ofaná svona gömlu borði. Blóm í vasa gera baðherbergið enn notalegra.

 

Heimilið hennar er algjör draumur, þeir sem hafa áhuga á að fylgja henni á instagram og skoða fleiri myndir geta followað hana hér: https://www.instagram.com/annikavonholdt/?hl=en

 

Við skulum kíkja á nokkrar instagram myndir sem ég setti saman.

 

 

 

 

 

 

Vona að þið hafið gaman af lestrinum hér á blogginu.

Njótið dagsins!

Kveðja
Ágústa

27. janúar, 2019/0 Comments/by Ágústa
Page 4 of 15«‹23456›»
Velkomin á bloggsíðuna mína Ágústa heiti ég stofnandi vefverslunarinnar íslensk heimili. Ég hef gífurlega mikinn áhuga á hönnun, plöntum, mat og fallegum vörum. Njótið þess að lesa.

Leita

Nýlegar færslur

  • Mýkt og mildir litir inná heimilið3. júní, 2021 - 5:49 e.h.
  • Happy fluffy cloud29. maí, 2021 - 8:41 e.h.
  • Svala make over7. júní, 2020 - 11:53 f.h.
  • Instagram innblástur Leanne Ford27. mars, 2020 - 11:49 e.h.

Allar færslur

Facebook

Interesting links

Here are some interesting links for you! Enjoy your stay :)

Pages

    Categories

    • Blogg

    Archive

    • júní 2021
    • maí 2021
    • júní 2020
    • mars 2020
    • febrúar 2020
    • febrúar 2019
    • janúar 2019
    • júlí 2018
    • apríl 2018
    • mars 2018
    • febrúar 2018
    • janúar 2018
    • nóvember 2017
    • október 2017
    @Copyright - Íslensk heimili
    • Instagram
    • Facebook
    Scroll to top