í dag ætlum við að kíkja í Sunnudagsheimsókn til Rithöfundarins Anniku Von Holdt.
Annika er mjög smart týpa sem býr í Fallegu húsi í Kaupmannahöfn. Áður en hún varð fræg fyrir störf sín sem rithöfundur þá vann hún sem módel og í almannatengslum. Hún átti mjög farsælan feril sem módel en í dag liggur hennar ástríða í að skrifa spennu og hryllingsbækur, hún hefur einnig gefið út bækur tengdar innanhúshönnun og skrifað fyrir ýmis blogg og tímarit.
Maður tekur alveg andköf þegar myndirnar af heimilinu hennar eru skoðaðar, en hún býr í Kaupmannahöfn ásamt syni sínum, manni og gæludýrum. Heimilið einkennist af svörtu, hvítu og stundum poppar upp smá litur.
Þegar Annika er spurð útí stílinn sinn þá segir hún að hann sé svona blanda af hinu og þessu, hún elskar tímalausa hönnun sem er falleg núna og verður það áfram eftir 20 til 40 ár líka. Hún safnar að sér hönnun eftir t.d Verner Panton, Philippe Starck,Le Corbusier og fleiri. Ásamt tímalausri hönnun þá finnst henni mjög fallegt að hafa gróf húsgögn bekki, borð, og ljósakrónur á heimilinu sem hún hefur safnað að sér í gegnum árin.
Við skulum kíkja í heimsókn í glæsilega heimilið hennar Anniku, en þegar hún dvelur ekki í húsinu sínu þá er hún í fríi á Karabíska hafinu. Eflaust algjör draumur að búa þarna og ferðast einnig til annara landa og eiga afdrep þar.
Heimilið hennar er algjör draumur, þeir sem hafa áhuga á að fylgja henni á instagram og skoða fleiri myndir geta followað hana hér: https://www.instagram.com/annikavonholdt/?hl=en
Við skulum kíkja á nokkrar instagram myndir sem ég setti saman.
Vona að þið hafið gaman af lestrinum hér á blogginu.
Njótið dagsins!
Kveðja
Ágústa
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!