Hver elskar ekki Sænskar kjötbollur og kartöflumús?
Mig langaði svo að geta búið til ótrúlega góðar sænskar kjötbollur og sósu frá grunni. Og rakst á þessa uppskrift á erlendri síðu sem ég er svo búin að breyta og bæta og gera að minni eigin. Svo útbjó ég Rustic kartöflumús með sem er himnensk á bragðið.
Það sem þarf fyrir kjötbollurnar:
500 gr Nautahakk
1/4 bolli brauðrasp
handfylli steinselja
1 matskeið Töfrakrydd eða annað All spice krydd
Hnífsoddur Nutmeg
1/4 bolli fínt saxaður gulur laukur
1-2 rif ferskur hvítlaukur
salt og pipar eftir smekk
1 egg
sirka 1/2 til 1 bolli af rifnum piparost
sirka 1 teskeið timian
Aðferð:
Blandið öllu saman í stóra skál og hrærið vel. Búið til 20-25 litlar kjötbollur og steikið á pönnu þar til þær eru orðnar gylltar að lit og eldaðar í gegn. Gott er að hafa ekki of háan hita heldur láta þær steikjast rólega við miðlungsháan hita.
Þegar þær eru tilbúanr takið þær þá af pönnunni og setjið í skál. Og byrjið á sósunni.
Það sem þarf fyrir sósuna:
5 matskeiðar smjör
3 matskeiðar hveiti
2 bollar vatn
1 og 1/2-2 kjötkraftar
1 bolli rjómi
1 matskeið worcestershire sósa
1 teskeið Dijon sinnep
salt og pipar eftir smekk gott að nota blandaðan pipar fyrir meira bragð.
sirka 1 teskeið af rósmarín (minna en meira því rósmarín er mjög bragðmikið)
Aðferð:
Byrjið á að setja smjörið á pönnuna, þegar það er bráðnað bætið þá við hveiti og hrærið vel. bætið hægt og rólega vatninu og rjómanum og setjið síðan kjötkraftinn útí sósuna og hrærið vel. Því næst fer Dijon mustard útí og Worchestershire sósan. Látið hana sjóða og þegar sósan er farin að þykkna þá getið þið bragðbætt með salt og pipar eftir smekk. Hellið síðan kjötbollunum útá pönnuna og látið malla meðan þið útbúið kartöflumúsina.
Það sem þarf fyrir Rustic kartöflumús:
10-12 miðlungsstórar kartöflur
sirka 80 gr philadelphia rjómaostur
sirka 80 gr smjörvi
smá sykur
Ein til tvær sletta af mjólk
salt
blandaður pipar (five pepper blend)
Aðferð: Byrjið á að sjóða kartöflurnar. Flysjið og setjið allar í pott með engu vatni hafið lágan hita og bætið smjörva og rjómaost við og stappið, það er mjög gott að gera hana ekki alveg mjúka heldur leyfa litlum karöflubitum að vera í. síðan bætiru við smá slettu af mjólk. sirka 1 msk af sykri og örlítið salt. sirka hálfa til heila matskeið af blönduðum pipar. síðan er bara gott að smakka hana til. Mér finnst hún vera fullkomin þegar allt bragðið nýtur sín, og að það sé ekki yfirþyrmandi bragð af piparnum eða sykrinum. Bara svona fullkomið jafnvægi.
Þá er bara að setjast til borðs og gæða sér á ljúffengum sænskum kjötbollum með rustic kartöflumús.
Verði þér að góðu.
Kær kveðja
Ágústa
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!