Einsog mörg ykkar þá elska ég að fá innblástur af instagram, og get eytt dágóðum tíma þar inni.
Það sem ég elska mest er að uppgötva nýja instagram síðu sem veitir mér ferskan og skemmtilegan innblástur bæði fyrir heimilið mitt, verslunina og vörur sem ég vil hafa fáanlegar í versluninni.
Um daginn datt ég inná https://www.instagram.com/frisze_blik/ en hennar stíll einkennist af minimaliskum boho stíl myndi ég segja. Allt voða hvítt og ljóst sem er í raun andstæðan við það sem gengur og gerist núna. En hún notar einnig mikið af náttúrulegum efnum einsog hörpúða, grófa potta, við og járn. Þó að ég myndi ekki sjálf vilja hafa heimilið mitt svona og instagram síðan virðist einsleit þá mæli ég með að þið rennið hægar yfir síðuna og takið eftir öllum litlu smáatriðunum hjá henni. Því hún er með margar góðar hugmyndir.
Persónulega myndi ég hafa fleiri grænar plöntur og smá lit með. En ég er alveg að elska hvítt núorðið og held að hvíti liturinn snúi von bráðar aftur. Æj hann er bara svo tímalaus og ferskur ertu ekki sammála?
Lítum á fleiri myndir og fáum hugmyndir…
Vonandi veittu þessar myndir ykkur einhvern innblástur. Einnig má heimsækja instagram síðuna hennar fyrir fleiri myndir. Linkurinn er efst.
Njótið helgarinnar!
Leave a Reply
Want to join the discussion?Feel free to contribute!