Einungis innskráðir viðskiptavinir sem hafa keypt vöruna geta skrifað umsögn
Bergs potter kobenhavner Grár 21 cm
7.390 kr.
Bergs potter Kobenhavner Grár 21 cm
Bergs potter var stofnað árið 1942 í Danmörku, pottarnir eru handgerðir í Tuscany á ítalíu af mjög færum leirkerasmiðum.
Þeir eru orðnir ansi þekktir víða um heim, og fást meðal annars í Illums bolighus í danmörku og Artilleriet.
Leirinn í Bergs potter er náttúrulegt efni sem heldur rakanum í moldinni einstaklega vel,
Þessvegna mæla þau með að setja plöntuna beint í pottinn án þess að nota pottahlíf
(litli plastpotturinn sem plantan kemur í)
Leirinn í Bergs potter er ekki meðhöndlaður með efni sem lokar leirnum, heldur er honum leyft að anda.
Þetta er hægt að prófa með því að bleyta pottinn ef hann breytir lit þá andar potturinn sem er mun betra
fyrir plönturnar.
Það er gat í botninum á pottinum sem hleypir umfram vatni í skálina sem fylgir með öllum pottunum,
Þessvegna er óþarfi að hafa áhyggjur af því að ræturnar liggi í mikilli bleytu og úldni, sem að lokum drepur plöntuna.
Þeir sem kjósa að hafa pottana úti geta gert það því pottarnir þola frost og kulda.
Ekki til á lager
Um okkur
Heimilisfang
Íslensk heimili
Ármúli 42 108 Reykjavík
Sími 7772683
islenskheimili@islenskheimili.is
Opnunartími:
Þri – Fös 12 – 18
Lau 12 – 16
Sun – Mán Lokað
Umsagnir
Það eru engar umsagnir enn.